Vísnahornið




| & | A | B | C | D | E | F | G | H | I | J | K | L | M | N | Ó | P | R | S | T | U | V | W | Ý | Ö | Þ |

Árni Johnsen "kveður"
Rósavendir, ræðuhöld,
á réttan mann þeir veðja.
Með gráti þennan góða mann,
Grundfirðingar kveðja.

Ei lengur bak við lás og slá,
má listamaður dvelja.
Úr fangelsinu föndrið má,
flytja heim og selja.

Höfundur: Þórður Vilberg

Tilefni:

Skráð: 2006-05-16 20:21:43