Vísnahornið




| & | A | B | C | D | E | F | G | H | I | J | K | L | M | N | Ó | P | R | S | T | U | V | W | Ý | Ö | Þ |

Frjósemispillan Viagra
Í landi elda og ísa,
er nánast hver einasta skvísa.
En nú gamall er limur,
sem áður var fimur.
Hann fæst ekki til þess að rísa.

Fyrir fyrrum ungmennin gröðu,
sem léku sér oft útí hlöðu.
Nú komin er pilla
til aðstoðar Lilla
að ná sér í upprétta stöðu.

Hér áður þau skemmtu sér saman
svo kafrjóð og broshýr í framan.
En eftir örlitla bið,
nú Lillinn rís við
svo þá verður aftur gaman.

Svo eldhressir og allir á lífi
þó eflaust þeir bakinu hlífi,
þeir biðja um fátt
en nú vilja þeir drátt.
það held ég að konurnar svífi.

Með auman og ónýtan tilla
sem með réttu má kalla Lilla.
Nú þarf ekki að bíða
bara fá sér að .....
Hún er góð þessi dásemdar pilla.

Höfundur: Óþekktur

Tilefni:

Skráð: 2006-04-05 21:30:01