Vísnahornið




| & | A | B | C | D | E | F | G | H | I | J | K | L | M | N | Ó | P | R | S | T | U | V | W | Ý | Ö | Þ |

Einkamál
Eg leiður var á konunni og lamaður á sál,
er leið ég fann til huggunar, í dálk um einkamál.
Þar kona var að óska eftir kæruleysis stund,
með karlmanni og fljótt hún vildi hafa þennan fund.

Nú auðvitað ég svaraði og síminn hringdi skjótt,
í símanum var rödd sem mælti "Hittu mig í nótt".
Ó - röddin var svo loðin - svo liggilega mjúk,
hún lét mig alveg finna að hun væri í mig sjúk.

Ég skal gjarnan leiða þig um lífsins paradís,
og leyfa þér að njóta þess að er vanadís.
Ég ferðast um á svaka flottum sendiferðabíl,
sérstaklega hentugum í ástarleikjapríl.

Svo nefndi hún mér stund og stað og speningurinn jókst,
að standast kvöldsins löngu bið, naumlega mér tókst.
Er eiginkonan yfirgaf mig draumaheiminn í,
ég orkuhlaðinn hélt á vit, ævintýra á ný.

Inni í bílnum beið hún mín, við brugðum strax á leik,
í banastuði fljóðið var sem lyfti mér á kreik.
Á eftir er hún kveikti ljós, mér æðislega brá,
og endastakk mér út úr bílnum - Tengdamömmu frá.

Höfundur: Óþekktur

Tilefni:

Skráð: 2006-08-20 14:42:28