Vísnahornið




| & | A | B | C | D | E | F | G | H | I | J | K | L | M | N | Ó | P | R | S | T | U | V | W | Ý | Ö | Þ |

Njálgurinn
Eitt er ég alveg viss um
sem enginn maður sér
að það eru njálgar að naga
neðri endann á mér.

Utan við endaþarminn
er ofurlítil skor
þar get ég svarið að sátu
sautján stykki í vor.

Þeir hafa nagað og nagað
og nú er komið haust
ég hef klórað og klórað
en kanski heldur laust.

Það er eins satt og ég sit hér
að sumir skriðu inn
þeir eðla sig innan í manni
andskotan kvikindin.

Höfundur: Lilli - Valgeir Runólfsson

Tilefni:

Skráð: 2006-04-05 21:30:01